Lýsing
HK kynnir með stolti nýjan búning félagsins fyrir komandi tímabil. Með honum er stigið markvisst skref í áframhaldandi þróun á ásýnd og sjálfsmynd félagsins.
Árið 2016 tók HK upp þverröndótta keppnisbúninga sem hafa síðan fest sig í sessi sem eitt sterkasta sjónræna einkenni félagsins. Nýja treyjan er hönnuð Halldóri Smára Sigurðssyni hannaði búninginn í samstarfi við Hjörvar Hafliðason og Macron. Að sögn Halldórs var markmiðið að þróa útlit HK enn frekar og skapa skýrari sérstöðu og þar kemur blái liturinn til sögunnar. Eitt af því sem einkennir nýjan búning er einmitt aukin áhersla á bláa litinn, sem nú kemur skýrar fram en áður, meðal annars í stuttbuxunum. Þó er blái liturinn ekki nýr fyrir HK. „Blár er nú þegar hluti af DNA félagsins,“ bendir Halldór á og vísar til varabúninga og árangurs liðsins í bláum treyjum.
Blái liturinn hefur einnig skýra tengingu við umhverfi félagsins. „HK er félagið við vatnið,“ segir Halldór og vísar þar til Elliðavatns og bláma þess. Þá má einnig sjá tengingu við íslenska fánann og stöðu HK sem „lið fólksins“, þar sem rauður, hvítur og blár mynda sameiginlega heild.
Með því að byggja búninginn upp á þessum þremur litum verður til sterkari og eftirminnilegri ásýnd. „Með því að taka upp þrjá félagsliti verður til aukin dýpt í vörumerki HK,“ segir Halldór, og bendir á að það opni jafnframt á fleiri möguleika í framsetningu á búnaði og öðru efni félagsins.
Hönnun treyjunnar byggir áfram á þverröndum, en í þessari útgáfu eru þær fínni og skapa léttari og nútímalegri ásýnd. Í treyjunni er jafnframt að finna mynstur sem sækir innblástur í vatn, þar sem „hringlaga munstur líkir eftir gárum sem breiðast út frá HK merkinu á brjóstinu.“
Mikil áhersla var lögð á að styrktaraðilar væru hluti af heildarútliti búnaðarins frá upphafi. „Það var mikilvægt að styrktaraðilar væru ekki eftir-á-hugsun heldur partur af keppnisbúningnum,“ segir Halldór, og bætir við að vel hafi tekist til í því samstarfi.












