50 ára afmælistreyja ÍK 1976-1991
ÍK treyjan er komin til landsins. Það voru pantaðar nokkrar aukatreyjur til að selja í kringum leikinn 5. september.
ATH! Þetta eru ítalskar stærðir og algengt er að fólk þurfi að taka númeri stærra en vanalega.
Lýsing
Lýsing
50 ára afmælistreyja ÍK, 1976-1991
Í tilefni af 50 ára afmæli Íþróttafélags Kópavogs (ÍK), sem starfaði í bænum á árunum 1976–1991 og lagði grunninn að knattspyrnudeild HK, hefur Macron hannað sérstaka afmælistreyju með nokkrum fyrrverandi leikmönnum félagsins. Um er að ræða góðgerðatreyju og rennur allur hagnaður af sölu hennar til barna- og unglingastarfs HK.
Góðgerðatreyjan er innblásin af upprunalegum litum og sögu ÍK. Styrktaraðilinn framan á er Reykofninn, sem var langlífasti bakhjarl ÍK. Letrið á treyjunni er innblásið af bókunum um Morgan Kane eftir Louis Masterson, en Prenthúsið var dyggur styrktaraðili ÍK í nokkur ár.
Afmælisleikur HK og Fylkis 5. september
Afmælistreyjan verður kynnt sérstaklega á afmælisviðburðum á árinu og munu bæði fyrrverandi leikmenn ÍK og fulltrúar úr HK-samfélaginu í dag taka þátt í að heiðra þennan litla en mikilvæga kafla í sögu íslenskrar knattspyrnu. Sérstakur afmælisleikur verður laugardaginn 5. september 2026 þegar HK og Fylkir etja kappi í Lengjudeild karla. Afmælistreyjan verður keppnisbúningur HK þann dag.
Þess má geta að fyrirhugað er að blása til upphitunar og eftirmála kringum leikinn og líklegt að 50 ára afmæli ÍK heitins verði fagnað um kvöldið.
Virðingarvottur við hugsjónafólk
Treyjan er hugsuð sem virðingarvottur við hugsjónafólkið sem byggði upp öflugt íþróttastarf í Kópavogi á sínum tíma. Með hönnuninni er brúað bil milli kynslóða; þeirra sem muna eftir ÍK á vellinum og nýrrar kynslóðar iðkenda og stuðningsfólks HK sem nýtur arfleifðar félagsins í dag.
Þér gæti einnig líkað við…
ÍK húfan
2.990 kr. með VSKLíklega langbestu æfingabuxurnar (THAMES)
9.990 kr. með VSK





