Keppnistreyja yngri flokka KR

9.990 kr. með VSK

 kr.
Vörunúmer: KR101 Flokkur: Merki: , , ,

Lýsing

Nýja Macron treyja KR er hönnuð af Ólafi Þór Kristinssyni og Jón Kára Eldon. Aftan á hálskraga treyjunnar hefur stofnár félagsins, 1899, verið saumað í til að minna á langa og farsæla sögu Knattspyrnufélags Reykjavíkur. Sjálfur kraginn er sóttur í hönnun á treyju félagsins frá árinu 1999.

Bakið á treyjunni er vitnun í hið sögulega ár 1999 þar sem haldið er í rendurnar og þær brotnar upp með hvítum kassa fyrir númer leikmanna. Undanfarin ár hefur bak KR treyjunnar verið hvítt og því er gaman að sjá rendurnar spila aftur stórt hlutverk á allri treyjunni.

Inni í treyjunni er að finna brot úr stuðningsmannalagi KR en með því vill félagið senda sínum stuðningsmönnum sérstakar þakkir.

Áfram KR!

 


Do you want to hide this popup?